10.11.2008 | 13:05
ákvað að setja inn eina færslu...
...þó það sé nú reyndar enginn að lesa þetta blogg mitt lengur ....ég ætti að verað skrifa ritgerð núna en ég er bara ekki alveg í stuði....er líka svöng en á engan mat, vona bara að ég fái námslánið mitt á morgun.....held ég neyðist til að búa mér til grjónagraut því það eina sem ég á er hrísgrjón
á morgun er síðasti skóladagur hjá mér.....er alveg ótrúlegt hvað þetta hefur liðið fljótt....það verða komin jól áður en maður veit af ....og ég hef ekki verslað eina einustu jólagjöf eða skrifað eitt einasta jólakort
úff....þarf að byrja á því í desember þegar ég er búin með prófin ...hef ekki tíma núna.
við Eli kíktum aðeins út á lífið á fimmtudaginn....buðum Anette, Hilde og Robert heim til okkar og það var voða kósý....og svo var að sjálfsögðu byrjað á því að fara á írska pöbbinn...það er bara einhvernvegin alltaf þannig að maður byrjar þar ....svo fór Eli yfir á Harveys en hún kom fljótt til baka því það var enginn sem við þekktum þar og þá var stefnan tekin á Charlies....það voru reyndar engir tónleikar þar akkúrat þá en við skemmtum okkur ágætlega
svo þegar við komum heim fórum við í göngutúr með Milo og Robert kom með okkur og hafði með sér Balder....mjög skrautleg lið sem labbaði þarna um um miðja nótt...ansi hífað lið með tvo hunda sem hlupu út um allt....en allt gekk vel og þessi göngutúr reddaði alveg deginum eftir fyrir mig ....engin þynnka...mjög næs
en ég held ég verði bara að fara og elda mér grjóna því ég er svo svöng ....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 14:43
ég var að komast að því...
...að það eru bara 3 dagar eftir í skólanum og svo er ég komin í próflestrarfrí......mikið hrikalega líður tíminn hratt
....ég fer semsagt í skólann á morgun....verður mjög spennandi dagur by the way því það kemur kona frá barnavernd sem ætlar að fræða okkur aðeins um yngstu börnin sem lenda í kerfinu.....og svo er bara skóli mánudag og þriðjudag í næstu viku......en ég hef reyndar eina ritgerð sem ég er að byrja á núna og þarf að skila í næstu viku....þannig að það er svosem alveg nóg að gera
ég er mikið að spá í því þessa dagana hvort ég fái námslánið mitt eða ekki......veit ekkert hvernig staðan er í bönkunum núna en ég vona að ég fari að sjá einhverja peninga fljótlega
reyndi að hringja í þjónustufulltrúann minn áðan en þegar ég var búin að hlusta á tónlist í 10 mínútur, ákvað ég bara að leggja á og prófað senda annað e-mail á hana.....geri ráð fyrir því að það kosti mig einhverja aurana að hringja til þeirra frá Noregi og ég held ég kveiki frekar bara á útvarpinu hérna ef mig langar að hlusta á smá tónlist
svo er bekkurinn minn að hugsa um að fara út að borða og eitthvað eftir prófið ....en ég er auðvitað að vinna það kvöld......þarf að sjá hvort Linda geti gefið mér frí....væri gaman að kynnast þessum stelpum betur
ég þarf að farað versla núna...það er að segja ef ég á einhvern pening.....er voða sorglegt að kíkja inn í skápana mína núna ....ekkert ætilegt að finna......ég var reyndar búin að plana að fara á fiskmarkaðinn niðrí bæ og kaupa mér nýja ýsu, en svo var klukkan bara allt í einu orðin svo margt að það var búið að loka....verð að reynað flýta mér niðreftir strax eftir skóla á morgun 
bæjó í biló 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2008 | 15:49
Það er svo leiðinlegt...
....að hugsa til þess að helgin sé senn á enda....tíminn líður alltof fljótt....ég hef verið að vinna alla helgina þannig að ég hef nú ekki fengið mikinn rólegheitatíma fyrir sjálfa mig....en svona er lífið
á föstudagskvöldið kom vinkona Eli í heimsókn, það var ágætt....er nú ekki svo oft sem það koma gestir hingað.....var reyndar soldið stress því hún er hrædd við hunda....en allt gekk vel sem betur fer og Milo var stilltur megnið af kvöldinu, hann bara beit mig örlítið þegar ég var að reynað setja við inn í viðarofninn, því hann langaði meira að naga viðinn en að brenna hann
eina sem er þegar Eli fær gesti er að við sitjum allt kvöldið við matarborðið á hörðum tréstólum.....er kannski bara íslensk kurteisi að bjóða fólki að setjast í sófann að lokinni máltíð.....en ég var semsagt að drepast í bakinu þegar ég vaknaði í gærmorgun....er ekki vön því að sitja á svona hænuprikum
núna er ég síðan í tómum vandræðum með að tala við hundinn og að reynað aga hann, því ég má víst ekki segja nafnið hans og ekki segja "nei" þannig að það er ekki svo létt þegar hann er í hinum endanum á herberginu og nagar snúrurnar á tölvunni hennar Eli....þannig að Eli skammaði mig fyrir það að ég hefði sagt nafnið hans og svo nei rétt á eftir...og svo var víst ekki rétt hjá mér að segja nei og ýta honum niður þegar hann hoppaði uppá fötluðu stelpuna sem Eli er að passa....þannig að ég er í smá vandræðum með að hjálpa henni þegar hundurinn er erfiður....veit ekki alveg hvað ég á að gera 
en núna er Eli komin heim þannig að ætli ég hætti ekki að blogga í bili....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2008 | 20:10
í dag...
...hef ég verið frekar þreytt, var að passa hjá Lindu í nótt og fór þaðan um hálf sjö í morgun....var ekkert sérstaklega gaman að labba niður þessa svakalegu brekku í fljúgandi hálku....var ansi nálægt því að detta á hausinn og það var bara rétt svo að ég náði strætó
Svo datt Eli þegar við fórum í skólann í morgun....ótrúlega fyndið.....hálkan er hættuleg skal ég segja ykkur.
í fyrradag fékk ég e-mail frá skólanum í Kanada, þeir voru bara að láta mig vita að þeir hefðu fengið umsóknina og svo fékk ég annað e-mail um það að þeir vildu að ég sendi svona auka umsókn og einkannir, þannig að ég hef verið að skrifa hana í dag og ætlað senda hana á morgun
í þessari auka umsókn vildu þeir að ég skrifaði niður 2 meðmælendur, og 3 manneskjur sem gætu staðfest að ég hefði gefið þeim réttar upplýsingar um mig
...þeir hleypa greinilega ekki hverjum sem er inn í þennan skóla, ég varð líka að skrifa afhverju mig langaði að farað læra sálfræði og af hverju ég hafði valið þennan skóla......ég er frekar léleg í svona ritgerðasmíð þannig að það verður spennandi að sjá hvað þeir segja
svo fer ég til Kanada í desember í viku heimsókn....kannski ég fari og kíki á skólann og athuga hvernig þetta lítur út allt saman....verð að reynað plata Brad með mér inn til Toronto einn dag
núna erum við Milo ein heima því Eli er í vinnunni.....og mig er farið að gruna að hann sé að komast á kynþroskaaldurinn.....haldiði að hann hafi ekki bara hoppað og tekið utan um fótinn á mér og byrjað að hamast.....jukk....ógeðslegt.....og svo fann ég sæðisslettu á gólfinu aðeins seinna.....ógeðslega næs

Svo er Halloween á morgun....rosa gaman fyrir krakkana.....ég held samt að ég nenni ekki að finna mér búning.....er orðin aðeins of gömul fyrir "grikk eða gott" dæmið 
hafið það gott hver svo sem þið eruð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2008 | 09:40
snjór!
já gott fólk það lítur út fyrir að veturinn sé að nálgast.....þegar ég tók strætó heim um 7 leytið í morgun þegar ég var búin að vinna var aðeins að byrjað snjóa....en ég var búin að sjá að það var búið að spá slyddu í dag þannig að ég varð mjög hissa þegar ég leit út um gluggann heima hjá mér um hálf níuleytið og það var alhvít jörð.....voða kósí eiginlega en ógeðslega kalt
en núna er víst komin slydda þannig að ég á ekki von á að snjórinn endist lengi. ....og auðvitað var fólk ekki búið að búa sig undir snjóinn þannig að það er búið að vera fullt af árekstrum á austurlandinu og öll umferð nánast stopp
......merkilegt að þetta skuli koma fólki svona á óvart á hverju einasta ári.....er reyndar ekki skylda að hafa vetrardekk fyrr en eftir 1.nóvember en það er búið að verað spá þessu lengi þannig að fólk hefði nú átt að vera ready
ég var að skoða dagatalið mitt og ég hef víst verið og mun vera upptekin hverja einustu helgi í október og nóvember....mjög gaman bara vinna vinna vinna......ég hlakka til fyrstu helgarinnar í desember þegar ég loksins fæ frí....næs
jæja þarf að læra .....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2008 | 19:35
ánægð með góða helgi
jæja þá er helgin að verða búin.....ég er frekar þreytt en ánægð með góða helgi
strákurinn minn kom seinnipartinn á föstudaginn og þá bara tókum við það rólega og leigðum dvd.....er búið að vera svo ógeðslegt veður að maður reyndi að halda sig innandyra
....á laugardaginn fórum við svo í keilu og ég er að drepast úr harðsperrum eftir það......greinilega langt síðan ég hef farið í keilu
í dag fórum við svo í göngutúr uppí hundraðmetraskóginn og grilluðum pylsur í hádegismat....það var voða kósí.....veðrið var yndislegt og maður sá til og með glitta í bláan himinn og það hefur ekki gerst alla helgina
....og svo voru grillaðir sykurpúðar í eftirrétt ....namm namm
núna langar mig nú mest til að farað sofa en það er kannski aðeins of snemmt að farað sofa klukkan 8.....ég ætti náttla að byrja á þessari ritgerð sem á að skila á morgun....en ég er bara alltof þreytt ...ritgerðin fær að bíða þangað til á morgun
en ég nenni ekki að blogga meira núna......
geisp!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2008 | 13:41
smá blogg fyrir helgina
hó og hó....ákvað að blogga núna því ég get ekkert bloggað um helgina ....
núna sit ég hérna með glænýtt brauð með nugatti.....ógeðslega gott
namm namm
Eli og Milo eru farin til Langesund og koma ekki aftur fyrr en seint á sunnudaginn þannig að ég hef húsið for myself ....voða næs en soldið einmanalegt líka þegar maður er vanur því að það sé alltaf einhver hérna
en strákurinn minn kemur bráðum og þá fæ ég félagsskap.....held hann komi núna um 5 leytið.....ég hætti við að fara á skauta um helgina...ákvað að við gætum bara slakað aðeins á núna og farið kannski í keilu á morgun og svo kannski bíó ef það er eitthvað skemmtilegt í boði
...ég hitti hann nefnilega í gær og þá sagðist hann ekki hafa áhuga á að gera neitt kalt um helgina....fékk alveg nóg af kulda á rafting síðast þegar hann var hjá mér
....þannig að hann fær eina helgi núna með inniveru og svo verða það bara skautar næst eins og ég hafði planað ......mér finnst ekkert gaman að hanga heima þegar hann er hérna, þá er miklu skemmtilegra að fara út og gera eitthvað....og krakkar hafa gott af því að vera úti í nokkra tíma ....ekki satt 
ég hef ekki byrjað á ritgerðinni ennþá verð að gera það á sunnudaginn og á mánudaginn.....kom snemma heim í morgun og tók til í herberginu mínu og þreif naggrísabúrið og svo var það bara að þrífa húsið.....er alveg ógeðslega mikið af ryki og hundahárum....skil ekki að það sé mögulegt því við erum alltaf að ryksuga finnst mér.....en ég varð nú að gera húsið í stand áður en strákurinn kemur ....Eli var nú ekkert sérstaklega effektív í hreingerningunni og gerði nú ekki allt sem var á hennar verkalista......það gerir hún bara þegar hennar barn kemur í heimsókn....en þá ætlast hún auðvitað til að ég geri minn hluta alveg tipp topp, því hún vill ekki að stelpan fái ofnæmi fyrir hundinum.....en svona er þetta bara
erfitt að hafa roommates stundum 
svo þegar þrifin voru búin var aðeins sest niður og svo var farið út í búð að versla....verð nú að hafa mat í húsinu þó maður sé fátækur námsmaður ....barnið verður víst að borða
...ég keypti reyndar alltof mikið.....og alltof mikið af óþarfa held ég......konan á kassanum bauð mér extra stóran poka með sterkum haldföngum.....ég var ánægð að ég hafði þegið hann þegar ég fór að labba heim með allt góssið......úff það var þungt....en sem betur fer er ekkert rosalega langt heim þannig að ég lifði þetta af
fékk reyndar ekki pláss fyrir allt í hillunni minni þannig að stóri góði pokinn minn verður bara að vera á borðinu þangað til ég hef borðað það sem er í honum
segi þetta gott í bili.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 16:49
brjálað að gera..ógeðslega þreytt...geisp!
ég ákvað að blogga örlítið áður en ég fer að vinna.....í dag var síðasti dagur í praksis og það er mjög gott að vera búin þó það sé auðvitað alltaf gaman að vera með börnunum.....ég meina hver vill ekki vinna á svona stað þar sem stelpan sem situr við hliðina á þér, snýr sér allt í einu að þér og þurrkar hor í ermina hjá þér af því að hún nennir ekki að hlaupa og ná í pappír.....æðislegt
en leikritið okkar gekk vel....held ég.....í dag voru flest börnin mjög dugleg að gera hreyfingarnar sem fylgja söngvunum sem við sungum og það leit út fyrir að þau skemmtu sér mjög vel
í gær var ansi brjálaður dagur....ég kom heim úr praksis klukkan 15 og þá eldaði ég smá pasta, pakkaði niður linsuboxi og tannbursta og tók svo strætó uppí barnaskólann....þar hafði ég yfirumsjón með hlutunum því hin stelpan var lasin....var soldið stress því það voru alltaf að koma inn fleiri og fleiri krakkar inn um einhverjar hurðir sem áttu að vera læstar, og svo var tómt vesen að fá þau inn í leikfimisalinn því ég er ekki með lykilkort að öllum hurðum
......ræstingarkonan kom meirað segja til mín alveg brjáluð og sagði að ég yrði að passa uppá að opna fyrir þeim sem komu
.....og ég passaði uppá hurðina sem þau áttu að koma inn og það var búið að segja mér að það ætti ekki að vera hægt að fara inn neins staðar annars staðar.....ég hafði heldur ekki tíma til að hlaupa út um allan skólann og kíkja á allar hurðir á 10 mínútna fresti .....en þetta reddaðist og krakkarnir skemmtu sér vel....vona bara að ég hafi fengið alla út áður en ég læsti....en ég var semsagt búin þarna klukkan rétt yfir sjö og þá kom Linda að ná í mig af því að ég fór svo að passa fyrir hana í nótt...ég kom nú krökkunum í rúmið á skikkanlegum tíma og svo settist ég niður til að slappa af og þá fékk ég alveg dúndrandi hausverk....hrikalega óþægilegt
....og við Eli höfðum ekki fengið neinn tíma til að plana hvað við ætluðum að gera í dag og það stressaði mig svolítið....þannig að ég fór á fætur klukkan 5:50 í morgun og var heima um 7 leytið þannig að við gætur rætt aðeins málin áður en við færum uppí leikskóla. Núna er ég svo að bíða eftir að verða sótt því ég fer að passa aftur í nótt ....en það er alla vega gott að ég er ekki að farað gera neitt í fyrramálið og get sofið út.....svo kemur stuðningsbarnið mitt seinnipartinn á morgun og verður hjá mér um helgina 
ég var nú eiginlega búin að plana að við myndum fara og lærað skjóta með pílu og boga....en þegar ég hringdi í fólkið í gær að þá sögðu þau að síðasti dagur fyrir það var í dag, þannig að ég þarf að finna uppá einhverju öðru fyrir okkur að gera
ég var nú búin að plana að fara með hann á skauta ekki núna um helgina heldur næstu, en ég reyni kannski bara að gera það núna....hefði bara verið betra að gera það í nóvember því þá eru fleiri skautasvell opin og þá getum við valið um inni eða úti svell. Eina vandamálið mitt núna er að það er þriggja tíma keyrsla þangað og ég á ekki bíl og veit ekki um neinn sem getur lánað mér bíl heldur
....ég hef nefnilega tjékkað á rútunum og það er alveg fáránlegt en ég þarf að fara fyrst alla leið til Drammen og taka þaðan aðra rútu til Skien.....þannig að ég keyri framhjá mínu stoppi og þarf svo að fara aftur í átt að kristiansand.....og það tekur 6 eða 7 tíma.....sama gildir um lestir.....og ég held bara að strákurinn komi til með að drepast úr leiðindum plús það að þó við legðum af stað um 8-9 leytið þá erum við ekki komin fyrr en um 3 og þá höfum við bara tvo tíma þangað til þeir loka.....og ég nenni ekki svoleiðis stressi
en núna þarf ég að hætta .....vinnan kallar ....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2008 | 16:15
not so happy today
hæ enn og aftur, þá er ég búin með enn einn daginn í praksis og þá eru bara tveir dagar eftir.....ég vonaði að við myndum sýna leikritið okkar aftur í dag, en Eli vildi það ekki.....ég hefði nú óskað að hún hefði sagt mér það í gær þannig að ég gæti sleppt því að vera í öllu búningsdraslinu undir.....ógeðslega pirrandi
...mig langaði helst að ljúka þessu af og geta slakað á og verið í venjulegum fötum síðasta daginn í praksis.....en núna varð ekkert af því......er svo pirrandi að það er aldrei neitt gert eins og ég vil hafa það......alltaf skulu aðrir fá að ráða.....ég er líklega alltof róleg til að fólk taki mark á mér......finnst ykkur ekki pirrandi þegar þið eruð nánast ósynileg og enginn hlustar á ykkur? ...eru kannski ekki svo margir sem upplifa það
...en ég vona þá að það verði ekki alltof mikið að æfa fyrir fimmtudaginn því ég er í praksis frá 8:30 - 14:30 og svo fer ég að vinna frá 16-19 og svo fer ég í aðra vinnu klukkan 19:15 og til fimmtudagsmorguns þannig að ég hef engan tíma....og við ætluðum að gera mestu breytingarnar á síðustu sýningunni.....fokking pirrandi.....veit ekki hvort ég verði eins hress og vakandi eftir svona langan vinnudag daginn áður.....ég get reyndar sofið á þessum næturvöktum en ég sef voða lítið og vakna við minsta hljóð, því ég er svo hrædd um að barnið sem ég er að passa fái flogakast án þess að ég taki eftir því
en svona er lífið .....maður fær sjaldan það sem maður vill ......ömurlegt
núna er Eli á hundanámskeiði með Milo, þannig að ég slappa af fyrir framan imbann og læt mér leiðast
er svosem ekkert meira að segja...verð vonandi í aðeins betra skapi næst þegar ég blogga og ekki eins pirruð 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2008 | 16:04
ég syng í rigningu....
já í dag fór ég á fætur klukkan 6 og svo fórum við Eli upp í háskóla um 7 leytið...þurftum aðeins að æfa leikritið okkar áður en við færum upp í leikskóla, því það gengur eiginlega ekki að æfa hérna heima útaf Milo
Nema svo er alveg ausandi rigning í dag þannig að ég er búin að vera rennblaut í allan dag, því ég fór fyrst upp í skóla og svo yfir í leikskólann og svo aftur upp í skóla til að sýna kennurunum leikritið......ég get svo svarið það að ég gæti staðið í sturtunni í klukkutíma og ekki orðið eins rennandi blaut eins og í þessari rigningu......algjört rugl......og alveg ekta íslenskt
en annars gekk leikritið ágætlega....Eli gleymdi reyndar nokkrum hlutum þannig að það setti mig aðeins útaf laginu en þetta reddaðist allt saman og krakkarnir sátu alveg frosin allan tímann.....akkúrat eins og það á að vera......eins og leikskólakennarinn segir "ef þau sitja kyrr, þá líkar þeim það sem er verið að sýna"
svo þegar við vorum búnar með sýninguna að þá leyfðum við börnunum aðeins að leika með bangsana og hljóðfærin sem við höfðum notað ....það var svaka fjör....en svo þurftum við að hlaupa því við höfðum bara hálftíma til að koma okkur heim og láta Milo pissa og fara svo upp í skóla .....svo vorum við uppí skóla frá 12 -16 ......þar sýndum við leikritið aftur nema núna fyrir kennarana og bekkinn og það var ekkert sérstaklega gaman
....fyrir það fyrsta að þá voru öll leikritin ætluð börnum frá 0-2 ára þannig að það höfðar voða lítið til fullorðinna og svo er alltaf svo mikið stress að sýna svona fyrir fullorðna....er miklu betra að eiga við börn .....Eli varð ennþá meira stressuð en hún var í leikskólanum þannig að það var ýmislegt sem gleymdist... og svo söng hún eitt lagið aðeins vitlaust þannig að þá varð ég stressuð við það að reynað fylgja henni .....úff.....en kennararnir voru MJÖG ánægðir og þeim fannst það alveg æðislegt að við hefðum eitthvað allt annað en allir hinir 
svo förum við aftur í leikskólann á morgun og sýnum leikritið aftur ....en þá með smá breytingum....ohh ég verð svo ánægð þegar þessi vika er búin ....er ansi mikið að gera með praksis og svo held ég að ég sé að vinna næturvakt á fimmtudaginn og svo kemur stuðningsbarnið mitt á föstudaginn og verður fram á sunnudag....veit ekki alveg hvað ég á að gera með honum um helgina...er ekkert sérstaklega gaman að verað gera eitthvað úti þegar það er rok og rigning....en mig langar ekki að hanga heima heldur....þarf að skoða málið aðeins betur....en þarf að komast að niðurstöðu fljótlega ef ég skyldi þurfað panta eitthvað eða svoleiðis
Fór nú með hann á rafting síðast þegar hann var hérna, þannig að ég get nú reynt að gera eitthvað rólegra um næstu helgi.....eina sem er soldið slæmt með að verað vinna alla helgina er að ég fæ ekki tíma til að gera ritgerðina mína um þetta leiklistarverkefni, og það á að skila því á mánudaginn .....en kennararnir sögðu að ég gæti fengið extra dag þannig að það var gott .....er svo leiðinlegt að skila hálfkláruðu verkefni 
núna erum við Milo ein heima því Eli þurfti að fara á námskeið í sambandi við vinnuna hjá barnavernd .....þegar Milo kom heim eftir göngutúr áðan hljóp hann beint til mín, stillti sér upp við hliðina á mér og hristi sig eins og hann ætti lífið að leysa......úff.....það var blautt skal ég segja ykkur....og ég nýkomin heim og komin í þurr föt.....alveg týpiskt 
en ætli ég segi þetta ekki gott í bili....þarf að skrifa niður hvað við gerðum í leikskólanum í dag og hvernig það gekk.....er best að gera það meðan það er ferskt í minninu..treysti því ekki að ég muni það þegar ég fer að skrifa verkefnið ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.2.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 724
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







